
Ég er ACC-vottaður stjórnendamarkþjálfi hjá ICF og vottaður High Performance Coach,
með víðtæka reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun.
Samhliða því hef ég starfað sem atvinnusöngkona í yfir 20 ár.
Markþjálfun fyrir fólk sem vill skapa meiri skýrleika, ná markmiðum sínum
og byggja upp árangur sem endist.

Ég vinn með einstaklingum og hópum sem vilja skapa meiri skýrleika, styrkja sjálfstraust og frammistöðu, taka markvissari ákvarðanir og beina orkunni að því sem skiptir þau raunverulega máli.

Fyrir alla þá sem vilja efla samskipti, skýrleika, ákvarðanatöku og eigin leiðtogahæfni.
Ég er ACC-vottaður markþjálfi hjá ICF og lauk námi í stjórnendamarkþjálfun hjá Háskólanum í Reykjavík og CoachU.
Í markþjálfuninni nýtist bæði fagleg menntun mín og fjölbreytt reynsla úr mannauði, rekstri, verkefnastjórnun og samskiptum.

Hástigs frammistöðu þjálfun er markvisst ferli þar sem við vinnum meðal annars með skýrleika, orku, hugrekki, framleiðni og áhrif.
Markmiðið er að hjálpa þér að taka næstu skref af meiri meðvitund og skýrleika og byggja upp frammistöðu sem getur haldist til lengri tíma, án þess að vellíðan og mikilvæg sambönd sitji á hakanum.

Í undirbúningi er 12 skipta lifandi námskeið og markþjálfunarferli þar sem unnið verður markvisst með meðal annars skýrleika, orku, hugrekki, framleiðni, áhrif, tilgang og framkvæmd.
Námskeiðið er ætlað fólki sem vill sjá stöðu sína skýrar, tengjast eigin styrk og taka markvissari skref í lífi og starfi. Ferlið sameinar kennslu, verkefnavinnu og markþjálfun í hlýju, faglegu og styðjandi hópaumhverfi.
Námskeiðið byggir á menntun minni sem Certified High Performance Coach og er aðlagað að íslenskum markhópi.
Nánari upplýsingar koma fljótlega.
Fjölbreytt reynsla, en sami rauði þráðurinn:
skipulag, samskipti, skýrleiki, sálfræði og söngur.

Tónlist
Ég hef starfað sem atvinnusöngkona frá árinu 2004 og komið fram við ótrúlega fjölbreyttar aðstæður, allt frá stórum tónleikum, sjónvarpsverkefnum og stúdíóvinnu yfir í dansleiki, árshátíðir, brúðkaup og einkaviðburði.
Ég starfa bæði sem einsöngvari og í röddum og hef í gegnum árin unnið með fjölda af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum landsins.

Yfir 20 ára reynsla af söng og framkomu við fjölbreyttar aðstæður, bæði sem einsöngvari og í röddum.



Ég hef tekið þátt í fjölda stórra tónleika og sýninga og unnið með fjölbreyttu tónlistarfólki hérlendis og erlendis.

Tónlist fyrir viðburði af öllum stærðum, frá nánum einkasamkvæmum upp í stórar árshátíðir og dansleiki.


Ég er Certified High Performance Coach (hástigs frammistöðuþjálfi) frá High Performance Institute. Ég vinn með markvissa nálgun sem hjálpar fólki að efla skýrleika, orku, hugrekki, framleiðni og áhrif og byggja upp frammistöðu sem endist.

Að sjá skýrar hver þú vilt vera, hvað skiptir mestu máli og hvert þú vilt stefna, svo ákvarðanir og næstu skref verði markvissari.

Að skapa og viðhalda andlegri, líkamlegri og tilfinningalegri orku til að mæta kröfum dagsins, vera til staðar og halda góðri frammistöðu.

Að þora að tjá hugmyndir, taka djarfar ákvarðanir og stíga út fyrir þægindarammann, jafnvel þegar óvissa eða ótti er til staðar.

Að beina tíma, athygli og orku að því sem skiptir mestu máli, draga úr truflunum og vinna markvisst að mikilvægustu niðurstöðunum.

Að byggja traust, eiga skýr og áhrifarík samskipti og hafa jákvæð áhrif á aðra þannig að fólk, hugmyndir og sameiginleg markmið geti vaxið.

Að byggja upp venjur sem styðja góðan árangur til lengri tíma, án þess að fórna vellíðan, mikilvægum samböndum eða því sem gefur lífinu gildi.

Fyrir mér snýst hástigs frammistaða ekki um að keyra sig út, heldur að ná góðum árangri á sama tíma og vellíðan og mikilvæg sambönd fá að halda sér.

Ég er ACC-vottaður stjórnendamarkþjálfi hjá International Coaching Federation (ICF) stærstu alþjóðlegu fagstofnun markþjálfa. Vottunin staðfestir menntun, reynslu og faglega hæfni og skuldbindur mig jafnframt til að starfa samkvæmt siðareglum og faglegum viðmiðum ICF.

Ég lauk stjórnendamarkþjálfun hjá Opna Háskólanum í Reykjavík og CoachU. Námið er ICF vottað og byggir á kjarnahæfni og siðareglum ICF, með verklegri þjálfun, endurgjöf og mentor-markþjálfun.

Til að öðlast ACC-vottun þarf að hafa að lágmarki 100 klukkustunda reynslu af markþjálfun með raunverulegum markþegum.

ACC krefst að minnsta kosti 10 klukkustunda mentor-markþjálfunar, mats á markþjálfunarfærni og loks skriflegs prófs hjá ICF.

Sem ICF-markþjálfi starfa ég samkvæmt siðareglum sem leggja meðal annars áherslu á trúnað, skýr fagleg mörk, heiðarleika, ábyrgð og hagsmuni markþegans.
Ég sit sem ritari í stjórn Íslandsdeildar ICF og tek virkan þátt í félagsstarfi, endurmenntun og skipulagningu viðburða á vegum samtakanna. Fyrir mér snýst fagmennska ekki bara um að öðlast vottun, heldur að halda áfram að læra, þróast og taka virkan þátt í faginu.
Þegar þú velur ICF-vottaðan markþjálfa veistu að viðkomandi hefur uppfyllt skilgreind alþjóðleg viðmið um menntun, reynslu, hæfni og siðferði.
+
klst. sérhæft markþjálfunarnám
yfir
klst. markþjálfunarreynsla
amk
klst. mentor-markþjálfun
Ég er með reynslu í markþjálfun, sálfræði, mannauði og reksti, verkefna– og viðburðastjórnun og yfir 20 ára starf í tónlistarbransanum. Þessi fjölbreytta reynsla mótar hvernig ég vinn , en rauði þráðurinn hefur alltaf verið sá sami: skipulag, samskipti, skýrleiki, sálfræði og söngur.

Ég hef víðtæka reynslu af verkefnastjórnun, rekstri og viðburðastjórnun, þar sem sterk yfirsýn, forgangsröðun og eftirfylgni skipta sköpum. Ég kann vel að taka hugmynd, brjóta hana niður í skýr skref og fylgja henni alla leið í framkvæmd.

Samskipti hafa verið mikilvæg í störfum mínum, meðal annars í markþjálfun, mannauðsmálum, stjórnun og tónlist. Markþjálfunin hefur sérstaklega styrkt mig í virkri hlustun, spurningatækni, traustssköpun og því að mæta ólíku fólki þar sem það er statt.

Skýrleiki er einn af lykilþáttunum í High Performance Coaching og stór hluti af því hvernig ég vinn. Ég hjálpa fólki að greina hvað skiptir raunverulega máli, sjá stöðu sína skýrar og taka markvissari ákvarðanir um næstu skref.

Ég er að ljúka BS námi í sálfræði við Háskólann á Akureyri og á aðeins lokaritgerðina eftir. Námið hefur dýpkað skilning minn á mannlegri hegðun, hvatningu, samskiptum, ákvarðanatöku og þeim þáttum sem hafa áhrif á vellíðan og frammistöðu.

Ég hef starfað sem atvinnusöngkona í yfir 20 ár og komið fram við fjölbreyttar aðstæður, allt frá stórum tónleikum og sjónvarpsverkefnum yfir í fyrirtækjaviðburði og veislur. Sá ferill hefur kennt mér mikið um undirbúning, samvinnu, aðlögunarhæfni og nærveru.
Mörg af mínum tónlistar-samstarfsverkefnum hafa staðið árum saman.
Ég hef haft þann heiður að vera ráðin aftur og aftur í ný verkefni með sama fólkinu, bæði á stórum tónleikum, í sjónvarpi, á tónlistarhátíðum og öðrum viðburðum.
Fyrir mér er það ein sterkasta viðurkenningin á fagmennsku, undirbúningi og góðu samstarfi.
Eitt af mínum helstu tónlistarverkefnum er NEONBANDIÐ, öflug viðburðahljómsveit sem ég stofnaði ásamt reyndu tónlistarfólki. Við leggjum áherslu á góða stemningu, fagmennsku og tónlist sem nær til fólks.

Við komum með áratuga reynslu af sviði, tónleikum, dansleikjum og fjölbreyttum viðburðum. Við þekkjum hvað þarf til að lesa salinn, halda uppi stemningu og skila faglegri framkvæmd frá byrjun til enda.

Við veljum lög sem fólk þekkir, tengir við og vill taka þátt í. Markmiðið er alltaf að skapa rétta stemningu fyrir tilefnið, hvort sem fólk vill hlusta, syngja með eða fylla dansgólfið.

Engir tveir viðburðir eru eins. Við aðlögum dagskrá, lengd og stemningu að hópnum og tilefninu, hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaviðburð, einkaveislu eða annan hátíðlegan viðburð.
Í gegnum tíðina hef ég fengið endurgjöf frá fólki sem hefur unnið með mér, fengið markþjálfun hjá mér eða þekkt mig í ólíkum aðstæðum. Þetta eru þrjú af þeim sem koma hvað oftast aftur.
VERKEFNA- OG VIÐBURÐASTJÓRNUN

Ég brýt verkefni niður í skýr skref, forgangsraða, set upp tímalínur og fylgi eftir svo allir viti hvað þarf að gerast og hvenær.

Ég hef reynslu af kostnaðaráætlunum, tilboðum, verðsamningum og því að halda utan um fjárhagslega þætti verkefna.

Ég hef unnið með fjölbreyttum samstarfsaðilum, meðal annars tónlistarfólki, tæknifólki, hljóðmönnum, ljósafólki, húsum, birgjum og veitingaaðilum, og haldið utan um samskipti milli margra aðila í sama verkefni.

Ég held utan um dagskrá, æfingar, tímasetningar og framkvæmd og legg jafnframt áherslu á eftirfylgni, uppgjör og að verkefnum sé lokað faglega.

Ég hef víðtæka reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun, bæði innan fyrirtækja og í tónlistarbransanum. Reynslan spannar meðal annars þróunar- og breytingaverkefni, innleiðingu nýrra verkferla og kerfa, auk tónleika, fyrirtækjaviðburða, árshátíða og annarra viðburða.
Mér líður vel þegar margir þræðir þurfa að koma saman. Ég sé bæði heildarmyndina og smáatriðin og legg áherslu á skýrt skipulag, góða samvinnu og að hlutirnir klárist.
Ég hef oft verið bæði verkefnastjóri og flytjandi í sama verkefni. Það hefur kennt mér að undirbúa vel, hugsa nokkur skref fram í tímann og tryggja að heildin sé komin í réttan farveg áður en framkvæmdin sjálf hefst.
Hvort sem þú ert að leita að markþjálfun, samstarfi, námskeiði, aðstoð við verkefni eða tónlist fyrir viðburð, þá máttu endilega hafa samband.
© 2026 Alma Rut Kristjánsdóttir. Allur réttur áskilinn.
Hástig sf.